|
|
13.03.2011 16:39:48 / erna
http://bananamauk.wordpress.com/
»
07.02.2010 20:31:14 / erna
Góða kvöldið litlu rassálfarnir mínir.
Núna er fríið mitt senn á enda, og ég verð eiginlega að viðurkenna að
ég hlakka bara smá til að byrja aftur í skólanum á morgun og takast á
við ný verkefni.
Fríið var annars með eindæmum gott og einkenndist ef svefni, bókalestri, sjónvarpsglápi og veikum Pelle.
Snjórinn hérna í DK virðist ekkert ætla að láta sig hverfa, og er satt
að segja orðinn hálfþreytandi. Með snjónum og kuldanum fylgja risastór
grýlukert, og sáum við um daginn það stærsta sem ég hef séð en það var
nánast jafn stórt og ég! Brr... Vonandi að sumarið komi bara fljótlega
eins og það gerði í mars á síðasta ári!
Ég og tvö stór grýlukerti sem reyndu að ráðast á mig.
Pelle og riiiisastóra grýlukertið!
Hérna á Raskinu (stúdentagarðurinn sem ég bý á) er allskonar
skemmtilega furðulegt fólk. Það er t.d. einn karl sem heldur að hann sé
Jesú. Hann er hávaxinn, grannur, með langt og mikið skegg og gengur
um í hvítum kufli og brúnum söndulum. Frekar fyndið, með allri virðingu
samt sem áður. Mjög hentugt að það séu risastórir gluggar á næstum
öllum íbúðunum hérna því þá er bæði auðvelt að njósna með að kíkja út
um þá og inn um þá. Haha... kannski ég sé bara ein af þeim furðulegu.
Enda þetta á einni dúllusnúllu mynd af okkur sætasta parinu í öllum heiminum frá síðasta sumri við Seljalandsfoss.
Mig langar næstum að klípa okkur í kinnarnar þegar ég sé þess mynd!
Knús til ykkar og megi þið eiga góða viku framundan 
-Heiðrún Erna Hlöðversdóttir.
»
29.01.2010 23:08:59 / erna
- Kominn tími á nýtt blogg??? - JÁ! Ég held nú það  Ég er búin með prófin mín sem gengu vonum framar. Fékk 9 á íslenska skalanum í munnlega/verklega prófinu og 8 á íslenska skalanum í sjúkdómafræðinni. Bara gaman, því núna er ég í viku fríi! Ætla nýta þann tíma vel í að gera eitthvað ofur mega skemmtilegt, t.d. lesa góða bók! Ætla jafnvel að nýta gjafabréfið sem Pelle gaf mér í jólagjöf, en það er lúxus nudd og olíu/krema meðferð fyrir andlit, hnakka og efra bak!! Hlakka fáránlega mikið til  Hér í Danmörku er búið að vera snjór í meira en mánuð með tilheyrandi kulda og gráma. Mér leið því næstum eins og ég væri komin til sólarlanda þegar ég kom til Íslands um jólin, í sólina og hitann. Jólafríið var auðvitað bara fullkomið. Það var fallegt veður allan tímann, knúsaði elskulegu fjölskylduna mína, vini og ættingja, borðaði endalaust af góðum mat og skellti mér í djammgallan nokkrum sinnum. Sem sagt, naut þess í botn að vera til! Frábært, frábært. Akkúrat núna er ég að springa úr spenningi yfir Ísland - Frakkland leiknum á EM í handbolta. Er ekkert smá stolt hvað strákarnir OKKAR eru að gera góða hluti. Verður spennandi að sjá hvar þeir enda, vonandi með gullið  En jæja, myndir segja meira en þúsund orð... svo látum þær tala sínu máli: Pelle var flottur á því og flaggaði íslenska fánanum þegar snjórinn var sem mestur í desember!  Ég og Sverrir sæti að skreyta fína og fallega jólatréð okkar. Við erum svo samhent og hjálpum alltaf hvort öðru. Systkinaást að eilífu, amen.  Ég sá Heiðrúnu kyssa jóóóólasvein. Hurðaskellir kom í heimsókn á aðfangadag og heimtaði einn koss á kinn (eða skegg réttara sagt). Dúllur þessir jólasveinar.  Ég og flottast pakkinn sem ég fékk frá þjóðernissinnanum bróður mínum. Jón Sigurðsson hinn eini sanni var innihald pakkans. Eða þar að segja, andlitslistaverk af honum.  Dóra, Þóra, Kristín og ég í pössun hjá mömmu og pabba uppi í sumarbústað. Það var rosalega skemmtilegt, fengum ís, skyrblöndu og kókosbollur! Ekkert smá heppnar.  Pelle minn stoltur af litlu systurdóttur sinni henni Augusta. Þess má geta að hann er Guðfaðir hennar. Ástarkveðjur, Heiðrún Erna Hlöðversdóttir. P.s. Ég vil koma því sérstaklega á framfæri að ástkær faðir minn, Hlöðver Örn a.k.a. Hlölli kúl, tók sumarbústaðarmyndina. Hér erum við að krúttlast saman á aðfangadagskvöld: ÁFRAM ÍSLAND
»
14.10.2009 22:38:32 / erna
Ég er greinilega að bregðast stóraðdáendum mínum með að vera Ó-dugleg í að blogga he he he!
Mér finnst bara svo mikið búið að gerast síðan síðast, að ég veit ekki
hvar ég á að byrja! Og því dreg ég það alltaf á langinn að blogga, sem
er ekki betra því þá safnast jú upp fréttirnar. Þvílíkur vítahringur
sem ég er föst í haha!
En allavega... Það helsta...
Kuldaboli er mættur til Danmerkur, eftir að Hitaboli (er hann til?) réði
öllum ríkjum. Laufblöðin eru mörg orðin gulrauð og fallin til jarðar.
Já, við erum dálítið eftir á í þeim málum miðað við Ísland. Það er samt
ágætt, ekki laust við að ég saknaði kuldans smá þegar hitinn var það
mikill að ég svitnaði við að labba í póstkassann (okey, smá ýkt, en
samt). Ég mun samt eflaust gráta af söknuði eftir sumrinu eftir ca 3
daga, nema það fari að snjói. Snjór er svo fallegur og góður á bragðið.
Fótboltinn gengur ótrúlega vel.... Eða... Það er alltaf jafn
skemmtilegt að hlaupa á eftir bolta og kynnast nýju fólki. Reyndar erum
við vandræðalega neðarlega (neðst) á stigatöflunni með 1 unninn leik og
7 tapaða. EN, það sem er mikilvægast akkúrat núna er að hafa það gaman,
ekki satt? Pelle er líka farin að æfa með sama liði, svo það er bara
snilld. Við erum klárlega flottasta fótboltaparið... bæði í bleikum
búningum!     Mynd frá eina sigurleiknum okkar. P.s. Ég vann boltann!
Mamma og pabbi komu í 10 daga heimsókn um daginn. Það var auðvitað best
í heimi að fá þau. Það gerist ekki heimilislegra en að liggja í sófanum
á meðan mamma eldar mat og pabbi hreinsar mottuna hehe. Við
gerðum margt skemmtilegt saman, enda ekki við öðru að búast! Elska þau  .  Við fórum t.d. í hjólatúr. Hérna má sjá mömmu og pabba ansi vígaleg á flottu og nýtískulegu hjólunum okkar Pelle.
Hérna er mynd af okkur fallega fólkinu þegar við fórum í fjallgöngu. Já, við gengum á þrjú fjöll á innan við klukkutíma. Geri aðrir betur. Á tímabili áttum við erfitt með að draga inn andann, enda mjög hátt á lofti. Þess má geta að ég átti einmitt afmæli á meðan mamma og pabbi voru í heimsókn. Fékk ég afmælisdeginum margar fínar gjafir og góðan mat. Hér er ég sátt með hluta af gjöfinni frá Sverri Erni besta bróður. Sá hitti beint í mark!  Kyssi kyssi. Ég að þakka besta kæróinum mínum fyrir góða gjöf.
Þegar mamma og pabbi fóru aftur til Íslands tók við biðin langa eftir
að Maja systir Pelle myndi fæða... Og loksins gerðist það þann
12.október! Í heiminn kom lítil og falleg stelpa. Við Pelle og
foreldrar hans keyrðum því samdægurs til Kaupmannahafnar, þar sem Maja
býr ásamt kærasta sínum, til að skoða litlu dúkkuna. Ég neita því ekki
að eggjastokkarnir klingdu hátt í þeirri heimsókn, en engar áhyggjur
elsku foreldrar mínir, ömmur og afar... Þið eruð ekki nærri því strax að verða
amma, afi, langömmur og langafi  !
En jæja, nóg komið í bili.
Ástarkveðjur,
Heiðrún Erna Hlöðversdóttir a.k.a. bleika stelpuleðurblakan.
»
29.08.2009 18:53:37 / erna
Jæja jájá góða kvöldið gott fólk! Núna eru orðnir nokkrir dagarnir og vikurnar síðan ég bloggaði síðast. Síðan þá er nú heldur betur margt skemmtilegt búið að gerast....! Fyrir það fyrsta vorum við Pelle á Íslandi í rúmar 5 vikur. Aldrei á lífsleið minni hefur tíminn flogið svona frá mér eins og þá. Allt var svo frábær með frábæru fólki að gera eitthvað frábærlega frábært! Veðrið var yndislegt nær allan tímann, enda ekki furða þegar Sólardrottningin sjálf er á ferð. Takk elsku Ísland fyrir að vera best í heimi og elsku besta fólkið mitt fyrir að vera til! Hérna er pínkulítið brot að því sem við gerðum á Íslandi: Við fórum í brúðkaup hjá góðvinum okkar Aldísi og Sigurjóni.  Við alltof svöl þegar við fórum í smá siglingu með einmitt Aldísi og Sigurjóni!  Við fórum í ferðalag með mömmu og pabba þar sem við sáum þessa jólasveina.  Þessi mynd er að gera allt vitlaust í módel heiminum.  Við skelltum okkur á Skímó ball þar sem við dönsuðum af okkur aukakílóin.
ooooog svo gerðum við margt margt margt margt fleira!
Þegar við komum aftur til Danmerkur var ég alveg viss um að við Pelle hefðum óvart tekið flugvélina til Spánar, svo þvílíkur var hitinn! Ekki liðu nema tvær vikur frá komu okkar til DK, þegar elskulegur stóri bróðir minn og kærastan hans komu í stórskemmtilega heimsókn til okkar hér í Odense. Brotabrot af myndum frá DK og heimsókn Sverris og Höllu! Í hitabylgjunni sem var hér, var óskaplega gott að geta hent sér í ískalt vatn. Hérna er Pelle að stinga sér af 5m palli!  Við eyddum 15mín í að tína 1kg af brómberjum úti í villtri náttúrunni, ekki slæmt það!  Halla, Sverrir, Pelle og ég. Svo gaman saman hihi!  Fyndið rómó móment í stórborginni Odense.
Ég og ÍSLENSKT SKYR í Odense!
Ég er byrjuð að æfa fótbolta hérna í Odense. Fór á mína fyrstu æfingu sl fimmtudag og spilaði leik í dag. Við töpuðum leiknum því miður 0-2 á útivelli, en á móti kom að ég var valinn leikmaður liðsins af leikmönnum og þjálfara. Jeiii, það er nú ekki alslæmt miðað við að ég hef ekki spilað alvöru fótbolta í eitt ár og 3 mánuði. En því skal nú ekki fagna of snemma, kannski var þetta byrjendaheppni! Ég og farandsvínið Bjarne Bacon sem ég fékk í verðlaun.. hehe
Jæja, komið nóg í bili! Megi þið eiga gott kvöld! Bless! -Heiðrún Erna Hlöðversdóttir!  Vakandi? Sofandi?
»
24.06.2009 19:29:29 / erna
HÆ! Ég er komin í sumarfrí, nananananaaaaa.... He he he Ég er búin með fyrsta árið mitt í sjúkraþjálfaranáminu og Pelle með fyrsta árið sitt í kennaranáminu sínu! Þetta fyrsta ár er búið að líða ansi hratt, jafnvel þótt að við séum fyrst búin í lok júní! JEEEJJJJ Jæja, teinarnir fengu að fjúka á 17.júní. Það var ansi mikill gleðidagur! Skrítin tilfinning þegar þeir eru farnir, tennurnar eru svo mjúkar og ekki matur sem situr fast þegar ég borða
Teinalaus kerling hihi.. Ekki samt að það sé mikið breytast mikið... Eeeen gaman samt  Ísbílinn hérna í Odense keyrir einu sinni í viku í götuna okkar. Alltaf þegar ég heyri ísbílahljóðið "díng díng díng díng" verð ég svo hoppandi spennt og langar að borða marga lítra af ís... Í síðustu viku varð draumurinn að veruleika, ég borðaði nú samt ekki marga lítra EN ég keypti ís frá ísbílnum  Á sama tíma var íslenskur pabbi með litlu sætu börnin sín að kaupa ís... Og ég var klárlega mun spenntari en þau. Svona er þetta, I loooove icecream!
DÍNG DÍNG DÍÍÍÍNG! Já, ég nenni ekki að hafa þetta lengra í dag. Enda þetta með nokkrum myndum... Fariði svo að kommenta dyrin ykkar! Annars fer ég í fylu
Um daginn bökuðum við Pelle heimagerðar pizzur. Hér er mynd af þeim áður en osturinn var settur á. Þið megið geta þrisvar sinnum hvor pizzan mín og hvor er Pelle!
Tveir pínkupínku litlir barnafroskar. Þeir kölluðu mig mömmu sína. Dúllur.
Risastór snigill, sem er kannski ekki alveg jafn mikil dúlla. Slímugur og bragðgóður? Ég er farin að njóta kvöldsólarinn... vííí!! BLESS -Heiðrún Erna, & Pelle proffi biður að heilsa.
»
05.06.2009 16:12:10 / erna
HÆ HÓ Ég er ekki búin að losna við teinana, og get því ennþá ekki brosað án þess að fólk fái ofbirtu og illt í augun. Þessir tannréttingakarlar eru víst alltaf að ljúga að manni... hehe, en tennurnar mínar eiga jú að verða fullkomnar svo þetta er ekki alslæmt. Núna er komin ny dagsetning á að ég verði megababe, og verður það 17.júní... Á sjálfum þjóðhátíðardegi Íslendinga! Ég mun því fagna honum í tannlæknastólnum... Fæ mér bara kandífloss og labba sjálf skrúðgöngu með gasblöðru og flaggandi íslenska fánanum á götum Odense eftirá  Hæ hó jibbí jeij og jibbííí jeiiij...
Tek mig bara asskoti vel út Eldhúsið okkar er tilbúið og er klárlega að gera sig. Akkúrat núna er heill kjúklingur í nyja bakaraofninum... Já, það er bara lúxuslíf hérna í DK
NICE Núna er ég búin að vera eina viku í praktíinni minni. Ég verð að viðurkenna að ég er að fíla þetta botn. Er með eldra fólki í alls konar hópþjálfun og einkaþjálfun þar sem konurnar syngja með upphitunarlögunum og karlarnir kvarta yfir of stórum fitubrjóstum  Fólkið er svo yndislegt og finnst æðislega spennandi að ég sé frá Íslandi. Ég er klárlega slá í gegn þarna  Ég kveð að sinni... Og óska ykkur góðrar helgar! Ég vona að helgin mín verði æðisleg eins og síðasta helgi, þegar það var sól og 30°C í skugga... shit hihi
Hver elskar ekki að taka sjálfsmyndir? -Heiðrún Erna... & Pelle pera biður að heilsa!
»
25.05.2009 11:05:04 / erna
Jæja... Enn og aftur er komið að nyju bloggi. Klöppum fyrir því og hrópum húrra! Klapp klapp klapp - Húrra húrra húrra og langt húúúúúúúrra! Það sem er helst í fréttum er að Pelle hlaupasnillingur og sætabolla hljóp MARAÞON í gær í Kaupmannahöfn! Þrátt fyrir að rigningu, vind og skaðað hné sem var til alltof mikilla vandræða kláraði drengurinn á 4 tímum og 18 mínútum. Núna er hann eini fjölskyldumeðlimurinn sem hefur hlaupið 42 km. Ég held að við pabbi og Sverrir verðum að bæta úr því á næsta ári, ekki satt? Til hamingju Pelle
Elsku sólskinsstrákurinn minn á harðaspretti eftir 12 km
Allir kraftar voru notaðir síðustu metrana á harðarspretti. Pelle er hlaupari númer 2 á myndinni.
Loksins fékk hann að bíta í Copenhagen Marathon medalíunni eftir margra mánaða þjálfun! Í síðustu viku byrjuðu iðnaðarkarlarnir að rífa niður gamla eldhúsið okkar til að geta sett upp nytt. Við þurftum því að tæma alla skápa og ísskápinn. Íbúðin lítur út eins og þriðja heimstyrjöldin hafi átt sér stað þar. Allt er gjörsamlega út um allt, og við getum ekkert gert þangað til á föstudaginn, þegar vinnu iðnaðarkarlanna verður endanlega lokið. Ég hlakka til! Já, föstudagurinn verður svo sannarlega gleðidagur... En ekki bara vegna eldhússins! Nei kæra fólk, á föstudaginn eru góðar líkur á því að ég losni við teinana mína. Þá verð ég ekki gleraugnaglámur & braceface, heldur einungis gleraugnaglámur. Það verður yndislegt að borða mat án þess að ALLT sitji fast í teinunum. Ég verð samt að viðurkenna að ég er ansi heppin að losna við þá svona fljótt, ég er ekki einu sinni búin að vera með þá í eitt ár. Ligga liga láááá! Í næstu viku byrja ég í tveggja vikna praktík. Ég verð á stað sem líkist (að ég held) heilsuhælinu í Hveragerði. Það verður rosalega spennandi, og það besta er að það tekur bara 5 mín að hjóla þangað !!! En gott í bili, kossar og knús til ykkar frá sjúklega góðu veðri hér í DK  Heiðrún Erna & Pelle Caröe.
»
11.05.2009 18:55:33 / erna
Góða kvöldið geiturnar mínar. Héðan úr DK er allt gott að frétta. Lífið gengur sinn vanagang með fallegum fuglasöngi, náttúran er græn, hvít og bleik, og lítil sæt dyr með margar fætur eru alls staðar. Það fer að styttast í að við fáum nytt eldhús í íbúðuna okkar. Við hlökkum ekkert smá mikið til að fá STÓRAN ísskáp, FJÓRAR eldavélahellur og BAKARAOFN... Þetta verður algjör lúxus! Reyndar er ég nú búin að heyra að iðnaðarkarlarnir séu ekkert að flyta sér að setja þetta allt saman upp, að þetta taki 2-3 vikur, en ef ég lofa að baka handa þeim súkkulaðiköku þegar þeir eru búnir spíta þeir kannski í lófana  Allavega... síðustu dagar... Eins og ég sagði frá í síðasta bloggi fórum við á fótboltaleik um þarsíðustu helgi. Vejle - Bröndby, en Sigurjón hafði fengið miða handa okkur ásamt sér sjálfum og Aldísi konunni sinni. Það er alltaf gott að þekkja rétta fólkið... En Sigurjón er frændi fyrirliða Bröndby!
Hér má sjá Pelle við hliðina á fyrirliðanum sjálfum, Stefáni Gíslasyni. Þvílíkur gleðiglampi í augunum á Pelle sæta, enda stór dagur með mörgum fótboltastórstjörnum  Síðastliðinn föstudag átti vinur okkur hérna á Raskinu 30 ára afmæli. Við gáfum honum því fína gjöf og tókum þátt í útivistardegi sem var alveg þrælskemmtilegt! Því miður klikkaði ég á að vera með myndavélina... dahh Á föstudagskvöldinu fórum við heim til Pelle í Fredericia, en foreldrar hans voru í sumarbústað. Fyrir okkur var þetta því eins og að vera á hóteli. Mjög ódyru og góðu hóteli, og ekki er það nú til að skemma fyrir!
Við fórum í göngutúr á flottu ströndinni og sáum þar undurfallega hafmeyju. Ég vildi óska þess að ég væri svona falleg.
Pelle syndi listir sínar í að fleyta kerlingar. Hann var nú bara ansi góður í því strákurinn!
Við gáfum einnig rádyrunum að borða. Þau eru svo sæt og krúttleg. Jæja, komið gott í bili! Enda þetta á einni góðri...
BLESS BLESS -Heiðrún hænuungi og Pelle páskaungi 
»
01.05.2009 20:35:58 / erna
Hæ elsku aðdáendurnir mínir!  Tölvuhleðslutækið mitt dó í páskafríinu... Ég er ekki búin að blogga síðan í páskafríinu... Í dag fékk ég nytt hleðslutæki... Núna er ég að blogga... Þegar hleðslutækið mitt dó, hoppaði ég í Elgiganten (Elko) til þess að kaupa nytt. Þar bauð sölumaðurinn mér að kaupa tæki fyrir 600Dkr (ca 12.000Íkr) sem tæki eina viku að senda heim. Ég sagði pent nei takk, alltof dyrt að mínu mati. Þá var nú lítið annað að gera en að bretta upp ermarnar, setja upp google-master gleraugun og leita á netinu! Þar sem ég er snillingur, fann ég tæki fyrir 215Dkr sem tók 1 dag í sendingu. Þar fékk ég sparaða nokkra seðla... En allavega... Páskafríið var ósköp ljúft og gott, það var gaman í bústað sem og hér heima. Í bústaðnum, skruppum við stutt til Álaborgar, fórum við í tvo dyragarða, spiluðum minigolf, fórum út að borða, gengum á flottu ströndinni og fleira. Hérna heima tjilluðum við og höfðum það skemmtilegt... Auðvitað
Í Álaborg fórum við í Ålborg Tårnet sem er 105m yfir sjávarmáli....
Ég verð að viðurkenna að okkur leið ekkert alltof vel þarna uppi í litla kúplinum sem sveiflaðist fram og til baka! Enda tókum við bara eina mynd og fórum svo aftur niður hehehehehe
Pelle reyndi að vinna mig í minigolfi, en auðvitað vann ég, Drottning minigolfsins.
Fallega ströndin og fallegi kærastinn minn. Fyndin tilviljun að það stóð Heiðrún  Pelle í sandinum.
Eitthvað fannst apanum ég líta skringilega út.... Þarna erum við í Randers Regnskov dyragarðinum, þar sem dyrin ganga laus. Mjög skemmtileg upplifun í miklum hita og svita. Um síðustu helgi átti tengdamóðir mín 50 ára afmæli. Að því tilefni var okkur Pelle og Maja&Michael (systir Pelle og kærasti hennar) boðið í sæluhús sem er rétt hjá Þyskalandi. Það var lúxushelgi með góðum mat, sundlaugaferðum, heimsókn í "skemmtivísindagarð" og skoðunarferðum.
Í "skemmtivísindagarðinum" prófuðum við m.a. að keyra um á Segway. Í stuttu máli sagt stendur maður á því og styrir með líkamanum. Algjör snilld!
Ég hef alltaf verið góð í að hoppa, og ákvað því að heilla tengdaforeldra mína og kærasta með því að hoppa yfir eitt hús. Á morgun erum við Pelle og Sigurjón að fara á fótboltaleik, Vejle - Bröndby. Svo skemmtilega vill að frændi Sigurjóns, Stefán Gíslason er leikmaður og fyrirliði Bröndby. Við hittum hann kannski eftir leikinn og á það eflaust eftir að vekja mikla lukku hehe. Ég ætla að enda þetta fína blogg á mynd frá svölunum okkar. Myndin er af fugli sem er að borða "fuglamatskúlu" sem Þórdís nágranni gaf okkur. Mjög kósy að borða morgunmat og horfa á sæta fugla í leiðinni.
 Takk fyrir að lesa skemmtilega upptalningarbloggið mitt, vonandi höfðuð þið gaman af.  High five til ykkar, -Heiðrún Erna, og Pelle paprika biður að venju að heilsa
»
08.04.2009 21:17:41 / erna
Ég er komin í páskafrí. Fallegt og langt páskafrí. Ég er að fíla það! Er búin að vera í smá prófum, sem ég veit ekki hvernig gengu. Fyrsta prófið var eflaust það skrítnasta próf sem ég hef farið í. Við mættum í skólann kl 09:00 sl mánudagsmorgun. Frá 09:00-10:00 sáum við vídjó af manni standa upp frá stól. Vídjóið var synt frá mörgum sjónarhornum, og það asnalega er, að mátinn sem hann stóð upp á var alltaf mismunandi frá öllum sjónarhornum. Við létum kennarann vita af því, sem sagði að það væri með vilja gert... hmm...og svo brosti hún vandræðalega . Út frá þessu vídjói áttum við sem sagt að svara 10 spurningum þar sem við áttum að greina hreyfingar hans og fleira. Við fengum 24 klst til þess að vinna verkefnið sem mátti vera max 12.000 slög á lyklaborðið. Mitt verkefni var 11.985 eða 5 bls. Í dag var ég svo í anatomiu prófi sem ég verð að viðurkenna að mér fannst ansi erfitt. Það var allt öðruvísi en ég og mínir bekkjarfélagar höfðum búist við. En allavega, gott að þetta sé yfirstaðið! Annars er ég búin að vera smá óheppin í kringum prófin. Vinstri hálskirtillinn minn ákvað á sunnudaginn að bólgna upp! Þegar ég kyngdi var eins og það væri hnífur í hálsinum á mér. Ekki sérlega þægilegt, og í þokkabót fékk ég hita, vöðva og liðaverki. En þar sem ég hafði engan tíma né löngun í að vera veik, hámaði ég í mig hráum hvítlauk (Pelle til mikillar gleði), fór í mörg lög af fötum og reyndi að svitna eins mikið og mögulegt var. Um nóttina svaf ég í peysu, flíspeysu, gammósíum, náttbuxum og tveimur þykkum sokkum með sæng og tvö teppi, og ég get sko sagt ykkur að ég svitnaði!! Um morguninn leið mér eins og ég hefði pissað yfir mig alla, EN allir verkir og hiti farinn, nema að vinstri sinnaði vinur minn, hálskirtilinn var ennþá stokkbólginn. Í dag keyptum við Pelle árskort í dyragarðinn hérna í Odense. Með kortinu getum við farið í dyragarðinn eins oft og við viljum, ásamt því að við fáum frítt í dyragarðinn í Álaborg, Köben og Givskud Lövepark, sem er einhverskonar safarí garður. Einnig fáum við aflslátt á marga aðra staði, og ekki þykir okkur það leiðinlegt! Þar sem við höfðum árkort í höndunum í dag, og vorum fyrir utan Odense Zoo, tókum við einn hring um garðinn.... Gaman gaman
Sætu aparnir sem á afgirtu svæði hlaupa og hoppa í kringum mann. Maður verður stundum að passa að þeir hoppi ekki á mann! Þeir eru svo litlir og sætir að mig langar að borða þá. hihi
Pelle að tjatta við Magga mörgæs og félaga. Þeir náðu ansi vel saman. Á morgun erum við að fara í sumarbústað með foreldrum Pelle. Ég hlakka mjög mikið til, enda eru Pelle og fjölskyldan hans oft búin að tala um hvað það sé fallegt og gott að vera þar, en bústaðurinn er í þeirra eigu. Ég er jú vön að fara í sumarbústaðinn okkar á Íslandi yfir páskana með bestu foreldrum og bróður í heimi, þannig það er fínt að geta farið í bústað hérna í DK yfir páskana með bestu tengdaforeldrum og kærasta í heimi.  Verð nú samt að viðurkenna að ég væri alveg til í að leita að páskaeggjum uppi í sumó og skoða skrítna málshætti með fallegu fjöllunni minni á páskadag. Það eru núna tvö ár síðan ég hef gert það! En svona er þetta... Ég er svo mikið að drífa mig í að verða fullorðin... hmmm haha... Myndalíf...
Sætu kjúllarnar sem við fundum hjá bakaranum. Þeir voru bragðgóðir. hihi
Um daginn gerði ég þrjár fastar fléttur í hárið á mér í þeirri von að fá smá krullur. Það heppnaðist... EKKI. Ég er stundum með ofurslétt hár. En jæja já, ég ætla að fara að plokka og lita á mér augabrúnirnar. Þær eru í smá slæmu ástandi núna (samt ekkert eins og þú á slæmum degi Tinna mín Laxdal haha). Ást og krúttukossar yfir til ykkar, Heiðrún Erna, og Pelle rappari biður að heilsa.
»
22.03.2009 11:59:43 / erna
Í dag er sunnudagur. Sunnudagar eru ágætir finnst mér. Hér í Odense er búið að vera hið fínasta veður síðustu daga. Sól og fínn hiti þegar maður er í skjóli. Það er rosalega huggulegt og skemmtilegt að geta notið sólarinnar úti á svölum. Og ekki er verra að hafa ís við höndina. Það er samt ekki sérlega hlytt þegar sólin skín ekki, dálítið eins og típískt íslenskt sumarveður hehe... Þegar ég sé frægt fólk er alltaf takmark hjá mér að snerta það. Um daginn var ég úti í búð og stóð í röðinni til að borga. Fyrir framan mig var Peter Utaka, en hann er einn besti leikmaður fótboltaliðsins hérna í Odense, OB. Ég náði að snerta hann ásamt því að við áttum í mjög löngum og djúpum samræðum. - Peter Utaka: Værsgo.
- Ég: Tak.
Ég efast ekki um að við eigum eftir að senda jólakort til hvers annars um jólin. Peter Utaka, nyi vinur minn.  Í gærkvöldi sá ég og snerti ennþá frægari mann. Mann sem allir (margir) Íslendingar kannast við.... Sjálfan Kim Larsen. Hann var haugadrukkinn og gat varla staðið í lappirnar. Blessaður maðurinn. Gaman að segja frá því að Peter Utaka og Kim Larsen eiga það sameiginlegt að vera báðir með feikistóran kjaft. Kim Larsen. Ég er ekki frá því að hann klæddist akkúrat þessum fötum í gær.
Í gær skelltum við Pelle okkur í klukkutímaferð til að skoða hæsta "hól" hérna á Fjóni. Það var afspyrnu fróðlegt og skemmtilegt. Við tókum að sjálfsögðu nokkrar myndir, því við erum svo myndarleg.
Ég að fljúga smá til að njóta útsynisins betur.
Pelle að æfa jafnvægið.
Ég uppi á einhverjum steini sem ég get ómögulega munað hvað stóð á. Jájájájájá... Ég er að fíla kommentin ykkar (þið megið taka þetta til ykkar sem kommenta hjá mér. Allir aðrir eru ekki svo skemmtilegir   ). Alltaf gaman að sjá hverjir nenna að fylgjast með mér hérna.  Kossaflens og kelerí,  Heiðrún Erna, & Pelle prakkari biður að heilsa. ', document.postmodify.message); return false;" href="javascript:void(0);">
»
14.03.2009 18:31:21 / erna
HÆ! Mér finnst rosalega fyndið þegar fólk frá USA spyr hvað Ísland sé, og hvort við búum í snjóhúsum. Mér finnst aftur á móti ákaflega sorglegt þegar fólk frá Danmörku spyr hvort að Ísland sé jafnstórt og Fyn/Fjón (lítil eyja sem er hluti af DK).  Ísland er ca. 103.000 km2 og Danmörk er 43.000 km2, þar af er Fyn ca. 3000km2. Ég er alls ekki að ætlast til þess að menn viti nákvæmar stærðir, en maður veit nú samt alveg að Ísland er stærra en Danmörk og að Svíþjóð er stærra en Ísland... Eða hvað? Á mbl.is er frétt um 6 fanga í Canada sem náðu að grafa sér göng frá fangelsinu með naglaklippum ásamt öðrum heimatilbúnum tólum. Mér finnst það klikkað! Hvernig getur það gerst í dag? Ekki samt að ég viti mikið um fangelsabyggingar í Canada...  Annars er svo lítið að frétta héðan að það er næstum því vandræðalegt.
Allavega ekki neitt sem er vert að birta á alheimsinternetinu. Ég gæti nú svo sem logið einhverju svaðalegu að ykkur, en ætla að sleppa því núna hehe... Ég var samt áðan að búa til Oreo ostaköku. Hún er núna í frystinum og verður borðuð í kvöld. Það verður spennandi að sjá hver útkoman verður. Dúddúúrúú... Spennandi ekki satt? haha Jááá... Ég ætla bara að enda þetta fína blogg á mynd áður en ég fer að segja frá klósettferðum og einhverju álíka skemmtilegu...  Hér erum við Pelle, Lalli og Carsten í Fårup Sommerland síðasta sumar. Eins og sjá má skemmtum við okkur ákaflega vel   Bless bless fallega fólk!  Ástarkveðjur,  Heiðrún Erna, og Pelle pottaleppi biður að sjálfsögðu að heilsa
»
08.03.2009 16:53:28 / erna
HÆ! Ég var að komast að því að ég er sú manneskja sem mig grunaði ALDREI að ég væri. Ég er hálf skelkuð yfir því, ef ég á að vera alveg hreinskilin. Já gott fólk, ég sef með hálfopin augu
Mynd sem Pelle sæti tók í dag á meðan ég tók litla kríu... En nóg af því... Helgin er búin að vera bysna fín. Á föstudagskvöldinu ákvaðu Pelle og Sigurjón að gæjast með gítarana sína. Við Aldís áttum því smá stelpukvöldi saman sem fólst í því að grenja yfir mynd (ég veit, það er sjokkerandi að ég grenji yfir mynd) og baka bestu súkkulaðiköku í heimi!  Ég er nú samt búin að gera meira um helgina að að grenja yfir mynd og baka... Við Pelle gerðumst listamenn á laugardaginn og máluðum við alls fjórar myndir. Okkur finnst þær sjúklega flottar, svo það þyðir ekkert að koma með ljótt komment á þær. Við eigum reyndar eftir að hengja þær upp.
(heh, pdc, heh, pdc) Klárlega flottustu listaverkin í heiminum í dag.  Annars held ég barasta að vorið sé á næsta leiti. Við vorum hjá öndunum í dag að gefa þeim brauð, en þær litu bara alls ekkert út fyrir að vera svangar... Og ég tek því sem sagt þannig að vorið sé á næsta leiti... og svo sumar!! En jájá, lítið að frétta svo ég segi bara bless: BLESS
kyskys, Heiðrún Erna, og Pelle pjakkur biður að heilsa!
»
03.03.2009 17:07:05 / erna
...ekki boltanet eða hæsnanet, heldur internet! Já, internetið er búið að vera að stríða okkur smá hér í íbúð 1305 síðustu daga, en núna er það loksins komið í gott stand! Gleðiiii... En já, lífið mitt síðustu daga... Mamma og pabbi komu í heimsókn um þar síðustu helgi. Það var æðislega yndislega skemmtilegt vegna þess að ég á bestu foreldra í heimi. Svo skemmtilega vill til að pabbi minn og Pelle minn eiga báðir afmæli 23. febrúar og var því fagnað með góðum mat og gjöfum. Það er alltaf svo frábært að fá þau í heimsókn, en ég verð að viðurkenna að það er alltaf risastór kökkur í hálsinum þegar ég vinka þeim bless á lestarstöðinni. Þau eru best. 
Ég og pabbi á rúntinum í Odense.
Klárlega flottustu mæðgurnar. Um síðustu helgi fórum við Pelle í Odense Zoo. Við fengum frímiða þangað fyrir ca þremur mánuðum síðan. Allan þann tíma var ég búin að hlakka svoooo mikið til þess að sjá mörgæsirnar vegna þess að þær eru svo flottar, kjánalegar og sætar. EN... Auðvitað var verið að mála heimilið þeirra akkúrat um síðustu helgi, svo við fengum ekki að sjá neinar mörgæsir.  Frekar mikið svekkjandi hehe... En það var nú samt feikilega skemmtilegt þrátt fyrir það!  Um kvöldið buðum við Aldísi og Sigurjóni í mat til okkar. Síðan var spilað á gítara, sungið, blaðrar og hlegið fram eftir kvöldi, auk þess sem við kíktum í innflutningsparty í 10 mínútur og á bar í 30 mínútur. Góð helgi.
Ég og Simbi, bestu vinir.
Pelle að klappa dúllugeitinni Guðrúnu.
Pelle og Sigurjón að stilla saman strengi sína.
Aldís og Ég að gera okkur besta í að vera sætar. Við tókum 10 myndir af okkur og þessi var sú skásta. Annars er það bara þetta venjulega.... Skóli, kyssa Pelle, göngutúrar, hlæja, gefa fiskunum að borða....  Mér hefur alltaf þótt gaman að draumum og dreymir mig oft á tíðum einhverja bölvaða vitleysu, en jafnfram oft eitthvað sem er svo raunverulegt að það er næstum því smá krípí. Um daginn dreymdi mig að einn af kennurunum mínum var alltaf að segja mér að gera magaæfingar, en ég sagði að ég gæti það ekki vegna þess að mér væri svo illt í bakinu.... Um morguninn þegar ég vaknaði var mér alveg fáránlega illt í bakinu, dálítið eins og ég væri með verstu harðsperrur í heimi. Dálítið skrítið hehe, sérstaklega þar sem ég var ekki búin að gera neitt daginn áður sem hefði átt að skilja eftir harðsperrur. Já, alltaf gaman að draumum (nema þegar maður fær martraðir  ). Ég vil enda þetta blogg á að segja að ég á klárlega sætasta og besta kærastann í öllum heiminum.... Þetta beið mín þegar ég kom heim í gær... 
Í kvöldmat eldaði elsku Pelle minn svo rétt sem heitir "Brændende kærlighed" eða "Brennandi ást". Takk í dag, meira seinna !! Ástarkossar og knús, Heiðrún og Pelle bjútíbombur 
»
Síður: 1 2 3 ... 15
|
Heimsóknir
Í dag: 11 Alls: 130090
|